Tuesday, December 09, 2008

Án titils

Einu sinni langaði mig alltaf að hafa allt grænt. Einu sinni langaði mig reyndar að hafa allt röndótt í litunum grænt og bleikt en ég sá hvað það passaði vel saman þegar ég stillti upp sænsku barnabókunum sem ég fékk einu sinni frá afa Árna upp í bókahilluna heima hjá mér í blokkinni stóru með öllu gamla fólkinu í Sólheimum 27. Mig minnir að þessar bækur hafi heitið Benni og Bína sem mér þótti ákaflega leiðinlegt fyrir Bínu enda er Bína frekar ömurlegt nafn. Það þykir kannski fallegra í Svíþjóð. Ég man lítið hvað Benni og Bína greyið gerðu í bókunum sínum en ég man þó að þau borðuðu mikið af sænskum brauðsnúðum sem mér fannst hljóma mjög spennandi: Snúðar eru jú bara brauð og brauðbrauð hlýtur að bjóða upp á eitthvað ansi hressandi...?

En núna er ég farin að rugla. Gæti verið að viðbrigðin sem hafa átt sér stað í lífi mínu síðustu fimm daga séu að ná yfirhöndinni? Að hverfa frá rigningu og kulda sem stingur inn að beini, rosalega mikið af camembertosti og eplaeftiréttum, fullt fullt fullt af verkefnum og dagskrá sem urðu til þess að ég svaf mjög lítið í tvær vikur og koma inn í notalegt vetrarland, þar sem það snjóar endalaust, þar sem allir eru íslenskir, tala íslensku og eru skemmtilegir en ekki franskir og..., þar sem einn kisi og ein lítil systir trufla mann endalaust frá þessum afar léttvæga og einbeitingarsnauða undirbúningi fyrir prófin sem ég þarf að tækla núna í desember og er sennilega það eina sem ég þarf að tækla í desember fyrir utan nokkrar jólagjafir og jólaboð en það er náttúrulega eitthvað sem maður tæklar ekki... hvernig tekst maður á við slík viðbrigði? Jú maður sefur mjöööög lengi, drekkur mikið jólaöl og grínar sig í hel.

En semsagt þessi græni litur. Núna langar mig í hvítan með nokkrum myndum eða póstkortum og einn appelsínugulan og danskan lækna hægindastól. Og já - það allt saman í bloggformi takk fyrir.


P.s. Hvað þýðir það að fá sms frá pabba sínum sem inniheldur einn punkt eftir að hafa sent honum ótrúlega fyndinn brandara?

0 comments: