Wednesday, December 10, 2008

How do you like my new blogorino?

Les philosophes, comme les sophistes anciens, qui sont les hommes á une conception de la vie, peuvent seuls sauver les peuples torturés par les fanatiques et les idéalists …

Sagði vinur minn Voltaire.

Sem minnir mig á það þegar Régis Boyer kom á Les Boréales, en Régis er stofnandi deildar norrænna fræða í Sorbonne og intellektjual mikill, og sagði eftirfarandi á meðan umræður um hið íslenska töfraraunsæi stóðu yfir : comme mon ami Michel Foucault dit … eins og vinur minn Michel Foucault sagði … ég man reyndar ekki hvað kom á eftir og hvað Michel Foucault hafði sagt sem átti svo skemmtilega við einmitt á þessum tímapunkti umræðana, því á þessu sama augnabliki blindaðist ég í nokkrar mínutur og hugsaði með mér vá Foucault var vinur hans – en ótrúlega töff. Eftir á að hyggja finnst mér þetta hinsvegar vera name-drop af versta tagi …

En að mergi málsins.

Það er staðreynd að heimspeki og heimsspekingar hafa allmargoft bjargað heiminum frá glötun og mannkyninu úr heljargreipum trúarlegra og pólitískra fanatíkusa. Sjáið bara átjándu öldina í Frakklandi og les lumiéres. Frakkar væru ennþá á valdi kaþólskra oftækismanna, að svelta í hel og með krullhærðan konung drottnandi yfir hverjum kima samfélagsins án þess að hafa hundsvit á því hvað hann væri að gera (“Svarti dauði? I don’t know… ég hef bara áhuga á lyklasmíð og hundarækt. Fjármálakreppa? Æji…. Eiginlega bara not interested”) ef að þessir ótrúlegu félagar hefðu ekki tekið sig saman og reddað málunum.

Og svei mér þá ef að það er ekki einmitt eða að minnsta kosti meðal annars skylda jafnvel tilgangur heimspekinnar sem humanities-greinar bara líka. Og svei mér þá ef við höfum ekki hitt naglann bara einmitt á höfuðið með þessu sem á svo sannarlega einnig við um aðrar fræðigreinar sem heyra undir hugvísinda og menningardeild Háskóla Íslands eða Humanities eins og það heitir allsstaðar annarsstaðar og ber með sér sterka vísun í þessa pælingu. Þ.e. að humanities- greinar og fræðimenn þeim tengdum eru til og starfa gagngert fyrir og handa mannkyninu.

Og heimspekingar og heimspekin muna halda áfram að bjarga heiminum. I dag þarf kannski ekki að hræðast oftækisfulla trúarleiðtoga eða jú samt eiginlega því ef við ætlum ennþá að skipta okkur hreint og beint í austur og vestur og afgreiða vandamálið með því að segja að trúarlegt ofstæki sé aðeins staðreynd í austri og þar af leiðandi okkur í vestri algjörlega óviðkomandi erum við djúpt sokkin í eigin sjálfblekkingu. Veistu ekki hvað sjálfblekking er? Leitaðu uppi Sartre í símaskránni og sláðu á þráðinn… Núna gæti ég tekið smá Boyer á þetta og sagt eins og Bhabha vinur minn segir eða Said frændi kallar það, en það ætla ég ekki að gera enda er hvorki Homi Bhabha vinur minn né Edward Said frændi minn…

Ég var í mjög skemmtilegum og áhugaverðum kúrsi í haust sem ég hefði viljað geta sinnt betur og nýtt á allan hátt betur, skrifað betri ritgerð og notið þess að læra betur og lesa betur og ræða betur þennan ótrúlega mikilvæga tíma í frönskum bókmenntum, heimspeki og hugmyndasögu. Ekki lesa bara og aðeins þegar ég hafði tíma, um helgar og í hádegishléum eða á kvöldin dauðþreytt eftir að hafa keypt sjö milljón flugmiða, átjánhundruð lestarmiða, föndrað sjötíumilljónþúsund persónulegar dagskrár, svarað trilljón og sjö tölvupóstum osfrv.

Kúrsinn heitir franskar bókmenntir á 17. og 18. öld og fjallar um það tímabil þegar ein mesta hugarfarsbreyting varð í Frakklandi og í raun Evrópu allri og örugglega heiminum líka – frá kaþólskri trúarfanatík og ritskoðunareinveldi yfir í upplýsingu og húmanisma sem bjargaði mannkyninu* frá glötun. Eða vilduð þið annars búa í klaustri í dag og geta aðeins lesið bækur og horft á DVD með trúarlegu ívafi og svartsýnisisma?

Einhvern tíma var ég í París og reifst í heilan dag við vin minn um gagnsemi heimspekináms. Ef ég hefði verið aðeins frjórri þennan dag og hann tekið sér aðeins betri tíma í að skoða söguna – við vorum einmitt hjá pantheon í latínuhverfinu þar sem les lumieres eru allir grafnir – er ég ekki frá því að hann hefði séð að sér og þakkað guði fyrir heimspeki og heimspekinga (sem er mjög mikil mótsögn, ég veit, en á sama tíma pínu hressandi…) og kastað hræsnishamnum og hrokaskikkjunni fyrir bí. Nei nú er ég farin að hljóma eins og einhver sem á bát sem heitir Fidel Kastró.


*Af hverju hljómar orðið mannkyn óþarflega háfleygt og tilgerðarlegt? Mannkyn er bara mannkyn: orð sem sameinar bæði menn og konur í heiminum og aðskilur þau frá öðrum kynum, s.s. samkyni (sem er danskt málfræðihugtak) og þorskyni (sem er fiskistofn).


Af einhverjum ástæðum kitlar þessi uppgötvun mig miklu meira en námsefnið fyrir prófið á morgun. Og einnig sú staðreynd að eftir tæplega klukkutíma mun ég loksins standa upp frá skifborðinu, stíga inn í eldhús, kveikja á útvarpinu og elda kúskús.

Vei.

P.s. Þó að Elínu finnist þetta nýja bloggútlit ekki fallegt og myndin hennar Sophie Calle tilgerðarleg (Elín er 5 ára og veit ekki hvað *tilgerðarleg* þýðir...) er ég mjög sátt við þetta. Græni liturinn var orðin þreyttur og Barbapabbableikur er búin að vera uppáhaldsliturinn minn í tvö ár. Leiðinlegt samt að kommentin þurftu öll að hverfa. Mér fannst þau einmitt það skemmtilegasta við þetta blogorino.

14 comments:

Bjorg said...

vei! ég fíla barbapabbableika litinn, ég þurfti samt að hugsa mig tvisvar um hvort ég væri á réttu bloggi...
x Björg

Kári Knúts said...

Er varla nýlokinn við að skrifa kafla um skoska og franska upplýsingamenn og hvernig evrósentrískur og darwinískur boðskapur þeirra um nútímavæðingu lifir sældar lífi enn í dag, reyndar þá allra helst í félagvísindum, 'humaniora' hefur haft þetta á orði heillengi.. Jú, jú þessir fílósoffar hafa vissulega hrint burtu ofstækistrúarmönnum og miðaldarhefðarvenjum með 'skynsemina' eina vopni, en hafa ber í huga að þeir voru að sama skapi verið að reyna að gera skil á óróleikanum sem einkenndi Evrópu á þessum tíma. Upp úr því komu margar hypótesur sem voru mönnum meira til huggunar en eitthvað sem byggðist á raunverulegum staðreyndum. Það voru nýir tímar og þau þurftu ný ráð, þar af leiðandi flæktust helstu hugsuðir Evrópu í nútímarvæðingarverkefni og gerðust einskonar spádómsmenn, sem töluðu um samheldni Evrópu, þjóðríki og hið einu og réttu leið heimsins til enda samfélagsþróunar - Kommersialismans, þar sem Evrópa var stödd og leiðbeindi öðrum réttu leiðina (þrátt fyrir að þeir kæmust væntanlega ekki þangað, og ef þeir komast, sköpum við bara eitthvað sem heitir póstmodernisma og höldum þeim aftur í fjarlægðinni. Talað var um frelsi einstaklingsins á meðan að nýlenduheimsveldin héldu milljónum manna í þrældómi, franska byltingin var vagga lýðræðisins, en hefur einhver heyrt um þrælabyltinguna á Haiti á sama tíma, þar sem stofnað var lýðræðisríki? Heimspekingarnir skópu önnur trúarbrögð, evrópskt lýðræði (be there or be square). Nú vinna þeir bara á auglýsingastofum og byggja aðrar skýjaborgir..

Kári Knúts said...

ég ætla að afsaka munnræpuna hér, ég skrifaði í blindni, gríni og af fljótfærni.. Mér líkar ekki þetta kommentakerfi hjá þér, aðallega af því að þessi mynd af mér kemur upp og ég kann ekki að taka hana burt. Nýja síðan er skemmtilegt tilbreyting og Calle tekur sig ágætlega út á toppi bloggsins.. ég þekki strák sem kallar sig Calle! en þetta er ekki hann..

Heidar Kari said...

Ekki vera að afsaka þig vinur - mér finnst þú skemmtilegur með munnræpu. Ég held að það sé örlítill munur á danska karlkyns Calle eða KALLÉ og hinu franska eftirnafnar Calle eða KALL...

Mér finnst þetta líka skemmtileg kommentamynd af þér og ég kann ekki að breyta kommentakerfinu því miður.

Vera said...

Þetta var ég!!!

Kári Knúts said...

ég fattaði að þetta væri þú þegar að 'heiðar' talaði um að breyta kommentakerfinu..

Calle er frá Jótlandi og segir 'lige i måsen'(beint í bossann), í staðinn fyrir 'i lige måde', sem eru tvær af ansi mörgum ástæðum að þetta sé ekki hann.. þriðja gæti t.d. verið að hún er hún og ekki hann.. Mér fannst bara svo fyndið að sjá nafninu bregða fyrir í háalvarlegri ritgerð betri helmingsins..

Katrín said...

haloscan.com

Halló Skriða.is said...

Er að klára að skrifa ritgerð um "Áhrif heimsspekinga á hið sanngjarna samfélag" akkúrat í augnablikinu og verð að segja að ég er hrifinn af blogginu. Mér finnst þetta með guð og heimspeki fáránlega mikilvægt og skemmtilegt. Ég er orðinn sannfærður um að ef Augustin og Aquinas hefðu ekki bennt okkur á sambandið milli guðdómleikans og rökrænnar hugsunar liði öllum verr í dag en raun ber vitni. Ég þakka guði fyrir heimsspeki og heimsspekingum fyrir trú mína.
Annars er ég sammála þér í flestu. Þessi heimsspeki er algjörlega málið.

Kv, Steini

Vera said...

Hæ Steini!

Gott að þú ert sammála mér - Ég vissi alltaf að þú værir góður.

Bestu kveðjur,
Vera

Erla Elíasdóttir said...

i like some new postorino to blogorino silvúple...?

Vera said...

Erla - Heldur þú að almættið hafi ekki tekið fram fyrir hendurnar á mér og gjörsamlega neitað mér um áframhaldandi aðgang að bloggiðkun. Amk á þessum vettvangi...

P.s. Þegar ég segi almættið, þá meina ég óprúttnir einstaklingar með ofmikla tölvukunnáttu og þar af leiðandi ítök í internetheimum... mjög óhugnanlegt og ég velti fram þeirri spurningu að gamni: Hver verður næstur? Því í þessum leik er enginn óhultur. Ekki einu sinni Davíð Oddsson.

En nóg af Stephen King.

Elsku Erla, Kári, Björg, Júlía, Pétur og þið sem lesið þetta blogg, ég verð því miður að tilkynna ótímabæran dauða Sei sei já.

Renaissance, jafnvel Electric Renaissance, verður auglýst síðar.

Erla Elíasdóttir said...

sei sei já! sei sei nú, lítið annað hægt að segja...

Kári Knúts said...

Ég held þetta hafi eitthvað með seinustu bloggfærslu að gera og heimspekinganna. þú ert föst í einhverskonar davinci-lykli. þú varst komin á hála braut, fannst einhverjum (Opus dei kannski..?)með hugmyndir sem skekið hefði þekkingarheim dagsins í dag, eða Paradigmið skv Thomas Kuhn. Ég syrgi því þetta blogg, sérstaklega af því að það hafði það að markmiði einu að segja sannleikann..

Vera said...

Kári, óttastu eigi því sannleiksleitin heldur áfram....

veraveraknuts.blogspot.com


Lesið eða deyið.


Nei vá ég get þetta ekki lengur... en samt nýtt blogg, nýjar áherslur og mjög minimalískt útlit - aðallega vegna þess að ég kann ekki og nenni ekki - á þessum skemmtilega þræði hér fyrir ofan.