Monday, November 03, 2008

PARIS, SÆBJÚGA, MOLIÉRE.

Hendurnar mínar vilja ekki starfa eðlilega í dag.
Ég átti mjög erfitt með að klæða mig, bursta tennurnar og allt hitt sem maður þarf að gera á morgnana ef maður vill líta eðlilega út og lifa eðlilegu lífi í samfélagi mannanna. Svo þegar ég kom í vinnuna og fór að taka til allskonar skjöl og pappíra missti ég allt út um allt og er búin að vera með krónískan skjálfta síðan.

Hvað er að gerast?

Annaðhvort dvaldi ég of lengi í sömu stellingunni í gær og lærði of lengi eða ég er við það að ganga í gegnum það sem ég hræðist mest: að breytast í þríhyrningslaga sæbjúga. Hrikalegt. Og spurning hvort að Ásta Björk þori nokkuð að vera vinkona mín eftir það.

En nóg af bulli - þetta er samt ekkert bull, ég er ótrúlega dofin í handleggjunum og með skrítna tilfinningu í puttunum og líður eins og ég sé komin inn í einhverja metamorphosis skástrik David Lynch fiction þar sem allir breytast á vissum tímapunkti í lífi sínu í eitthvað sem minnir á sæbjúga, jafnvel þríhyrningslaga sæbjúga og nú er minn tími kominn. Verst að vera í Frakklandi þegar þetta gengur yfir. Ca pose un peu de problém, non? - Hér er svolítið yndislegt fyrir ykkur - ástarfólkið mitt - að skoða:



Ég er að fara í próf og þarf því að vera að stelast til að læra í vinnunni - ekki stelast til að blogga. Bið ykkur öll vinsamlega um að senda mér alla ykkar Moliére og Madame de la Fayette strauma í kvöld klukkan 19 að íslenskum tíma en 20 að frönskum. Gangi mér vel.

P.s. Mæli með því að þið farið inn á Flickr síðuna og skoðið myndirnar þar því þá fáið þið texta og ferðasögu í kaupbæti. Ekki geðveikt?

0 comments: