Friday, October 17, 2008

Hádegismatur, hamstur, kimono.

Áðan borðaði ég gazpacho, club sandwich au jambon blanc, mousse au chocolat og makkarónu í hádegismat. Held að ég þurfi ekki að borða neitt meira um helgina.
Með þessu drakk ég vatn og kaffi. Sé ástæðu til þess að taka það sérstaklega fram að vatnið bragðaðist ekki eins og hamstur. Vatn í Frakklandi á það til að bragðast eins og feitur og gamall hamstur. Ekki að ég hafi borðað marga hamstra um ævina en ég hef fundið lyktina af þeim og get því getið mér til um framhaldið. Þið fattið hvert ég er að fara.

Mér finnst ekki leiðinlegt að missa af Airwaves. Hverjum finnst gaman að fara á tónleika og drekka bjór með vinum sínum? Ekki mér. Mér finnst miklu skemmtilegra að sitja við skrifborð, drekka instant kaffi og lesa franska klassíska skáldsögu frá 1678 sem telur á fimmtahundrað blaðsíður.

Á eftir ætla ég að kaupa mér Kimono og ganga síðan alltaf í honum. Síðan ætla ég að kaupa mér inniskó úr rauðu flaueli og ganga alltaf í þeim. Svo þegar Kimono og inniskór eri í höfn, ætla ég að safna yfirvaraskeggi, lita það svart og krulla það út til hliðanna.

Að lokum ætla ég að taka upp nafnið Marcel Proust.
Knútsdóttir er svo óþjált hérna í Frakklandi. Eiginlega bara algjört vesen.
Og ég nenni ekki veseni.
Hvert er þetta blogg að fara?
Sennilega til...

Bið ykkur vel að lifa og vona að þip hafið það gott um helgina. Ég mun allavegana hafa það gott um helgina.
Einnig vil ég biðja alla þá sem rekast á Flóka kisa að knúsa hann til hamingju með afmælið og segja við hann (fyrir mína hönd): Flóki. Núna ertu eins árs. Þá fer maður snemma að sofa og hættir að eltast við litlar kisulórur á kvöldin.

0 comments: