Wednesday, June 25, 2008

Sumarið er tíminn

Komin aftur á Seyðisfjörð og aftur farin að vinna 10 daga í röð. Eftir sjö daga mun Hulda Björk eignast barn og verða móðir. Eftir átta daga fer Kári heim til sín og nokkrum dögum síðar vestur yfir haf til Ameríku. Eftir um það bil tíu daga koma mamma og pabbi í heimsókn á Austurland. Innan tveggja mánaða verð ég orðin 23 ára gömul, búin að fá Júlíu og Björgu í heimsókn og búin að vinna 32890572 klukkutíma á Hótel Öldunni. Þá verð ég líka vonandi búin að fá vekjaraklukkuna hans Gumma úr viðgerð.

Einu skiptin sem ég finn tímann líða er þegar ég skoða dagatal, kíki sex mánuði aftur í tímann, og man t.d. eftir því þegar við Flóki fórum til dýralæknis í fyrsta skipti. Eða þegar ég skoða flug frá Köben til Parísar þann 15. September næskomandi. Á milli slíkra stórvægilegra augnablika er bara eins og allt líði einhvern veginn áfram og ég fljóti með.

Fýla það.

Eins og msn getur verið leiðinlegt getur það einnig verið afbragð skemmtun. Sérstaklega þegar maður er að tala við einhvern skemmtilegan. T.d. Júlíu Járnbrá Hermannsdóttur:

[12:42] julia: hæhæhæ
[12:42] Vera: Ég er að reyna að svara þér á feisbúkk
[12:42] Vera: gengur ekki vel
[12:42] julia: ég var að skrifa á facebook hjá þér áðan
[12:42] Vera: Svar: Ég kem á risastórum hvítum sendiferðabíl og sæki þig. Svo förum við og fáum okkur thai í shellinu og síðan í sund. Hvort langar þig meira að koma á Lunga eða með Björgu?

Þetta er ég að reyna að svara þér í fimmta sinn. Helvítis feisbúkk.
[12:42] julia: en fb virkar ekki núna
[12:42] julia: hjá mér
[12:42] julia: já vá frábært
[12:43] Vera: svona var kommentið mitt
[12:43] Vera: en sko Lunga: ég verð að vinna geðveikt mikið, mjög bissý en seyðisfjörður verður lifandi og skemmtilegur, margt að gerast og svona
[12:44] Vera: Björg: ég verð örugglega e-ð í fríi og get gert meira gaman með ykkur, farið á boggann og svoleiðis eeeeennn ekki eins gaman að vera á seyðis
[12:44] Vera: skil jú?
[12:44] Vera: það er samt alltaf gaman og næs að vera á seyðis
[12:46] julia: já einmitt
[12:47] julia: ég þarf aðeins að athuga þetta. kannski skemmtilegra að koma þegar þú ert aðeins í fríi og björg er líka og svolleis
[12:47] julia: þá myndi ég koma á föstudagskvöld
[12:48] julia: en kemur björg ekki fyrr þann föstudag? væri ekki asnalegt að þurfa tvisvar að sækja?
[12:51] Vera: hún kemur held ég á fimtudeginum
[12:51] Vera: nei nei við björgum því
[12:51] Vera: ég og björg
[12:51] Vera: ha
[12:51] Vera: björgum því
[12:51] Vera: björg
[12:51] Vera: og ég
[12:51] julia: ok
[12:51] Vera: björgum
[12:51] julia: hahahaha
[12:51] Vera: djóóók
[12:52] julia: það má VERA að við BJÖRGum þessu bara í JÚLÍ(a )
[12:52] Vera: hahaha
[12:52] Vera: tala nú ekki um það ha
[12:54] julia: ok gebbað. það er þá kannski bra málið. ég reyni að panta flug í kvöld
[12:55] Vera: ok kúl!
[12:55] Vera: hlakka til að fá ykkur!
[12:56] julia: förum á landsbyggðarfyllerí
[12:56] Vera: jááááuuuuu!!!!
[12:57] Vera: gummi ætlar að vera með!
[13:01] julia: gaman!
[13:02] Vera: hann kann landsbyggðarfyllerí betur en nokkur annar
[13:02] julia: frábært að hafa professional í þessu
[13:02] Vera: einmitt
[13:03] Vera: synda í lóninu og gubba í handklæði
[13:03] Vera: nei djók
[13:03] julia: hahahaha
[13:04] julia: það er svo skemmtilegur lögfræðinemi frá höfn að vinna með mér
[13:04] julia: talandi um landsbyggðarfyllerí
[13:04] julia: nei djók
[13:05] julia: nei hann var reyndar að tala um beirut
[13:05] Vera: haha
[13:05] julia: og það minnti mig á þig
[13:05] Vera: haha minnti lögfræðinemi frá höfn sem talar um landsbyggðarfylleri á mig!
[13:05] julia: nei hann var að tala um beirút, hljómsveitina
[13:06] julia: hann minntist ekkert á landsbyggðarfyllerí
[13:06] Vera: já ok ég skel
[13:06] Vera: ég elska beirut
[13:06] julia: hann líka
[13:06] Vera: og ég elska zach condon
[13:06] julia: og arcade fire
[13:06] julia: hann er að fara til stokkhólms að sjá bonnie prince billy á morgun
[13:06] julia: ég elska bonnie prince billy
[13:06] Vera: vildi að við hefðum hitt hann í matarboðinu ekki helvítis ryan gosling
[13:06] julia: ég er pínú djelló
[13:06] Vera: vá næs
[13:07] Vera: hvað heitir þessi gaur?
[13:07] Vera: eða gaurína?
[13:07] julia: gísli örn
[13:07] julia: ég hélt alltaf að hann væri mega hnakki
[13:07] Vera: rómeó?
[13:07] julia: afþví hann er ljóshærður
[13:07] Vera: haha
[13:07] julia: og í lögfræði
[13:07] Vera: þú ert svo njú jorkuð
[13:08] julia: en svo fór hann að spyrja hvort ég hefði séð eitthvað live í NY og ég eithvað.. ö... the knife... ö... xiu xiu...?
[13:08] julia: hann kannaðist ekkert við það og ég var eitthvað "æ þú kannast kanski ekkert við neitt sem ég hef séð það er ekkert rosa frægt"
[13:08] julia: og hann bara neinei ekki það sem ég fíla heldur
[13:08] julia: og þá minntist ég á fleet foxes
[13:08] julia: og hann bara OMG ÉG ELSKA FLEET FOXES
[13:09] Vera: í alvöru? vá magnað
[13:09] Vera: þetta er bara eins og ég í strákaformi ...
[13:09] Vera: nema ég er ekki í lögfræði og þekki mjög vel the knife og xiu xiu...
[13:09] Vera: djók
[13:10] Vera: hey ég er örugglega að fara á bon iver í köb í sept
[13:10] julia: strákaformi?
[13:10] julia: en vá það er geðveikt
[13:10] Vera: já ef ég er núna í stelpuformi...
[13:10] julia: já haha ég skil
[13:11] julia: ég hélt að strákaform væri einhver pöbb á seyðisfirði eða eitthvað
[13:12] Vera: HAHAHAHAHAH
[13:12] Vera: þú ert svo rugluð
[13:12] julia: ég veit
[13:12] Vera: strákaform - sportbarinn á Seyðisfirði
[13:13] Vera: hefuru lesið the impressionist?
[13:13] Vera: eftir Hari Kunzru?
[13:15] julia: nei en ég kannast voðalega við þetta nafn
[13:15] Vera: ég er að lesa hana núna
[13:15] Vera: þetta er svona indversk epík
[13:15] Vera: eða epík sem gerist í indlandi
[13:15] Vera: mjög flott saga
[13:15] Vera: post-colonialism og partý
[13:15] Vera: en ég þekki hann ekkert þennnan höfund
[13:15] Vera: var að spá hvort að þú þekktir hann eitthvað
[13:16] julia: já ég hef eitthvað heryt af þesari bók
[13:16] Vera: hann er breskur indverji held ég
[13:17] julia: ég hef ekkert meira heyrt af honum en bara um þessa bók
[13:17] julia: ætli hún sé ekki ein sú best þekkta sem hann hefur skrifað
[13:18] julia: ég man ekki hvort hún var kannski á listanum yfir hugsanlegar bækur í bókaklúbbnum mínum í haust
[13:18] julia: var ég búin að segja þér frá því
[13:18] Vera: transmission og noise er líka eftir hann
[13:18] Vera: nei
[13:18] Vera: hvaða bókakluúbbi?
[13:18] Vera: ú hljómar spennandi
[13:19] julia: já, einhver NYU stelpa bauð mér
[13:19] julia: það eru einhverjir fleiri NYU krakkar sem eru að læra ensku og bókmenntir
[13:19] julia: og alex fitzgerald vinur minn sem er í cooper union
[13:19] julia: og ég
[13:19] julia: og það er rosa plönun í gangi
[13:20] Vera: það hljómar geðveikt vel
[13:20] Vera: má ég vera memm
[13:20] Vera: ég verð bara á conference call
[13:20] Vera: djók
[13:21] Vera: hvaða fleiri bækur eru á lista?
[13:22] julia: For Whom The Bell Tolls by Ernest Hemmingway

When I was five I killed myself by Howard Buten

The Tropic of Cancer by Henry Miller

Motherless Brooklyn by Jonathan Lethem

Norwegian Wood by Haruki Murakami

All the Sad Young Literary Men, Keith Gessen

The Corrections, Jonathan Franzen

The Immoralist- Andre Gide

Nadja- Andre Breton

The Obscene Bird of the Night- Jose Donoso

Hell- Henri Barbus

[13:22] julia: þetta er listinn sem við vorum að kjósa um

[13:22] julia: Women by Charles Bukowski

Labyrinths by Jorge Luis Borges

Unknown Pleasures by Chris Ott

Black Spring (Henry Miller)

The Story of O by Paulie Reage

Foam of the Daze by Boris Vian

Eunoia by Christian Bok

[13:22] julia: og þetta

[13:25] Vera: Vá en görný ... Nadja eftir Breton er geðveik og Gide er í uppáhaldi, hann er svona módernískur tilraunamaður í miklum formpælingum ... hann kom við sögu í meta-fiction ritgerðinni minni ...
[13:25] julia: núnú
[13:25] julia: hérna eru nöfn á klúbbnum sem við vorum að kjósa um, taka skal fram að ég stakk upp á 5 af þessum 7 nöfnum haha
[13:25] julia: BOOK CLUB NAMES I LIKE:
-the society of literate organisms
-the serious reading society
-the serious book club
-general order of the serious bookclub for reading
-the serious order of literary discussion
-Read and Weep
-i can read famous book club


[13:26] Vera: ég segi : Read and Weep
eða i can read famous book club


[13:26] Vera: haha
[13:27] julia: já ég stakk sko upp á allskonar skemmtielgum nöfnum sem voru ekki samþykkt
[13:27] julia: bíddu...
[13:28] julia:
-order of the villain dancer for bandits
-order of the sacred bedpost for youth
-the general order of sacred bloodshed for kids
-the order of golden gallows in twilight
[13:28] julia: GEÐVEIK NÖFN SKILURU
[13:28] Vera: hahaha
[13:28] Vera: mér fannst þetta síðasta best
[13:28] Vera: þú ert svo sniðug
[13:28] Vera: miklu skemmtilegra líka að hafa flott nafn
[13:28] Vera: hvað með
[13:28] Vera: Habibi?
[13:28] julia: haha já
[13:29] julia: ég get stungið uppá því líka
[13:30] julia: bókaklúbburinn elskan mín
[13:30] Vera: hahaha já
[13:30] Vera: það er ótrúlega flott og sætt nafn

[13:32] julia: mig langar svo að fara í bóksölu stúdenta
[13:32] julia: og kaupa mér eitthvað svona "teach yourself japanese"
[13:33] julia: ef það er þá til
[13:33] julia: ég sá það allavega fyrir allskonar önnur tungumál
[13:33] julia: svo ég hafi eitthvað að gera í sumar
[13:33] Vera: ég held að það sé pottþétt til
[13:33] Vera: ég meina þeir kenna nú japönsku í hí
[13:34] julia: jújú
[13:34] Vera: pældu eftir eitt ár verður lilla syssa mín í japan
[13:34] julia: já ég er ýkt djelló
[13:34] Vera: að tala japönsku og borða kuru kuru
[13:34] julia: hvað er kuru kuru
[13:34] Vera: ég giska á japanskt nammi
[13:34] Vera: það hljómar þannig
[13:35] Vera: annars var ég bara að búa þetta til
[13:35] Vera: ég nefnilega fattaði - þegar ég bjó í Frakklandi og átti japanskar vinkonur - að japanska er tungumál sem samanstendur af stuttum orðum sem eru sögð tvisvar í röð
[13:35] Vera: kuru kuru
[13:35] Vera: mússí mússí
[13:35] Vera: konichúa konichúa
[13:36] Vera: ching ching
[13:36] Vera: sem þýðir skál á frönsku en typpi á japönsku ...
[13:36] julia: hahahahah
[13:36] julia: þú sagðir mér það einhverntíman
[13:36] Vera: það olli pínu vandró-heitum þegar við drukkum kampavín í skólanum í frakklandi
[13:36] Vera: sem var oft
[13:36] julia: já ég kann að segja
[13:37] julia: prjóna meira
[13:37] julia: AMINA OSHIIIIII
[13:37] julia: sko það er svona rosa æst PRJóNA MEIRAAA!!
[13:37] julia: og bara djók, barabaradjók
[13:37] julia: usso, ussoso, usso, ussoso
[13:38] Vera: haha
[13:38] Vera: hvar lærðiru það?
[13:38] julia: bíómyndum
[13:38] julia: ég sá eina geðveika japanska mynd
[13:38] julia: sem hét 100% wool
[13:38] julia: og var um lítinn prjónadraug
[13:38] julia: sem þurfti endalaust að prjóna og prjóna meira
[13:38] julia: og var alltaf rosa sæt að öskra "AMINA OSHIIII"
[13:39] Vera: haha
[13:39] julia: ég kann nú eitthvað meira en allt mjög beisikk
[13:39] Vera: auðvitað
[13:39] Vera: lítill prjónadraugur sem þarf alltaf að vera prjóna meira
[13:40] Vera: ég var einu sinni í karate og kann að segja
[13:40] Vera: arigato
[13:40] Vera: og arigato gusta mar
[13:40] Vera: nei mas
[13:40] Vera: og sensei - sem þýðir þjálfari
[13:40] julia: eða kennari
[13:40] Vera: ég sagði oft sensei við chiakki og henni fannst það alltaf geðveikt fyndið
[13:40] julia: haha
[13:41] Vera: einu sinni sagði ég það við kennarann okkar - hinn raffineraða monsieur charbonnier - sem fannst það ekkert fyndið
[13:41] julia: hehehehe
[13:41] Vera: en chiakki og momo tístu eins og japanskar smástelpur
[13:42] julia: auðvitað
[13:44] julia: hérna er prjónadraugsa í rauða:

[13:44] julia: hún prjónaði þessa rauðu peysu aftur og aftur og rak hana upp á milli
[13:45] Vera: flott mynd
[13:45] Vera: virkar soldið görný bíómynd
[13:45] Vera: langt síðan ég horfði á eitthvað japanskt. næst þegar ég á frí ætla ég í bíó - kannski sýnir hassan e-ð japanskt ef ég bið hann fallega
[13:46] julia: "Björg says:
minnir mig svo á görn"
[13:46] julia: á sama tíma og þú sagðir görný
[13:46] julia: ótrúlegt
[13:46] Vera: hahaha
[13:46] julia: hehe
[13:46] Vera: one mind ...
[13:46] Vera: væri þér sama ef ég myndi sýna alheiminum hversu skemmtileg þú ert?
[13:47] Vera: ergó pósta amk bútum úr þessu samtali á blogginu mínu.
[13:47] julia: jú auðvitað
[13:47] Vera: mig langar svo að blogga en ég nenni því ekki
[13:47] julia: hahaha
[13:47] julia: góð lausn.


Allt bú og ég þarf að mæta í vinnu. Sýni ykkur myndir þegar ég nenni.

Sumarið er tíminn til að nenna ekki.

Skilaboð til íslenskra handritshöfunda: Ef leitast er við að fanga raunveruleg samtöl í auglýsingu/kvikmynd/sjónvarpsþætti skal leita í MSN gagnagrunn. A.m.k. forðast það að ætla að *skapa* raunveruleg samtöl sjálfur. Það leiðir mann aðeins í ógöngur.

0 comments: